Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 29. ágúst 2022 15:00
Elvar Geir Magnússon
Kalajdzic að koma til Wolves og Boly að fara
Kalajdzic (til vinstri)
Kalajdzic (til vinstri)
Mynd: EPA
Sóknarmaðurinn Sasa Kalajdzic er á leið til Wolves frá Stuttgart fyrir 15,4 milljónir punda. Upphæðin hækkar eftir ákveðnum ákvæðum.

Bruno Lage, stjóri Wolves, hefur skeggrætt um þörf á að fá inn sóknarmann til að veita Raul Jimenez samkeppni.

Austurríski sóknarmaðurinn Kalajdzic er 25 ára og hefur verið á blaði hjá Úlfunum í nokkurn tíma.

Hann bað um að vera ekki í hópnum hjá Stuttgart sem mætti Köln um helgina.

Þá er varnarmaðurinn Willy Boly að færast nær því að yfirgefa Wolves og ganga í raðir Nottingham Forest. Boly mætti ekki í leikinn gegn Newcastle í gær þrátt fyrir að hafa átt að vera á bekknum. Með því vildi hann þrýsta á sölu.
Athugasemdir
banner
banner
banner