Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mán 30. maí 2022 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Aron Elís: Þetta gerist eiginlega ekki meira svekkjandi
Mynd: KSÍ

Aron Elís Þrándarson er með íslenska landsliðshópnum sem æfir í Danmörku fyrir komandi átök í Þjóðadeildinni.


Aron Elís á tíu leiki að baki fyrir Ísland og leikur með OB í Óðinsvéum sem tapaði úrslitaleik danska bikarsins eftir vítaspyrnukeppni gegn Midtjylland á dögunum.

„Þetta gerist eiginlega ekki meira svekkjandi, við vorum bara vítakeppni frá því að vera í Evrópu. Þetta var svekkelsi dagana eftir og maður er nýkominn yfir þetta, það hjálpar til að vera kominn í frískt umhverfi," sagði Aron Elís sem er tilbúinn í landsliðsverkefnið.

„Líkamsástandið er að verða betra og betra, það er búið að vera smá bras á mér á þessu ári. Ég er búinn að vera inn og út úr liðinu og þegar við vorum í vandræðum þá spilaði ég meiddur. Ég spilaði kannski aðeins of mikið og það kom í bakið á mér en nú er ég kominn aftur af stað."

Aron Elís var að lokum spurður út í framtíðaráformin sín og finnst líklegt að hann muni framlengja við OB.


Athugasemdir
banner
banner
banner