Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 30. ágúst 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gefast upp á Lingard og ætla því að sækja Vlasic
Nikola Vlasic.
Nikola Vlasic.
Mynd: Getty Images
West Ham virðist hafa gefist upp á því að fá Jesse Lingard frá Manchester United.

Þess í stað er félagið nálægt því að ganga frá kaupum á Króatanum Nikola Vlasic.

Vefmiðillinn Goal fjallar um að West Ham sé nálægt því að kaupa Vlasic frá CSKA Moskvu fyrir 30 milljónir evra.

Vlasic getur spilað flestar stöður framarlega á vellinum og kemur hann til með að styrkja lið West Ham. Viðræður West Ham við CSKA ganga ágætlega að sögn Goal.

Vlasic er 23 ára gamall og lék hann með Everton á Englandi frá 2017 til 2019. Hann fór eftir það til CSKA þar sem hann hefur staðið sig með prýði.

Systir hans er fyrrum stangastökkvarinn Blanka Vlasic.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner