Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 30. desember 2017 16:55
Kristófer Jónsson
England: Salah hetja Liverpool - Chelsea með stórsigur
Mynd: Getty Images
Fimm leikir voru að klárast í ensku úrvalsdeildinni rétt í þessu. Á Anfield fengu heimamenn í Liverpool lið Leicester í heimsókn.

Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir þá rauðklæddu en strax á þriðju mínútu kom Jamie Vardy gestunum yfir og hélst staðan þannig allan fyrri hálfleikinn.

Það var hins vegar Egyptinn Mohamed Salah sem að var hetja Liverpool í dag en hann skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og tryggði sínum mönnum 2-1 sigur.

Englandsmeistarar Chelsea buðu heldur betur uppá veislu á Stamford Bridge en þeim leik lauk með 5-0 sigri heimamanna. Mörk Chelsea skoruðu þeir Rudiger, Drinkwater, Pedro, Willian og Zappacosta.

Gylfi og félagar í Everton þurftu að sætta sig við svekkjandi tap gegn Bournemouth en sigurmarkið kom undir lok leiksins. Swansea átti síðan frábæra endurkomu gegn Watford en sigurmark Swansea kom á 90.mínútu.

Úrslit úr leikjum dagsins má sjá hér að neðan

Bournemouth 2 - 1 Everton
1-0 Ryan Fraser ('33 )
1-1 Idrissa Gueye ('57 )
2-1 Ryan Fraser ('88 )

Chelsea 5 - 0 Stoke City
1-0 Antonio Rudiger ('3 )
2-0 Daniel Drinkwater ('9 )
3-0 Pedro ('23 )
4-0 Willian ('73 , víti)
5-0 Davide Zappacosta ('88 )

Huddersfield 0 - 0 Burnley

Liverpool 2 - 1 Leicester City
0-1 Jamie Vardy ('3 )
1-1 Mohamed Salah ('52 )
2-1 Mohamed Salah ('76 )

Watford 1 - 2 Swansea
1-0 Andre Carrillo ('11 )
1-1 Jordan Ayew ('86 )
1-2 Luciano Narsingh ('90 )

Newcastle 0 - 0 Brighton
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner