Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 31. maí 2021 19:55
Aksentije Milisic
Mjólkurbikar kvenna: Delaney og Viktorija sáu um Stjörnuna
Mynd: Aðsend
Stjarnan 1 - 2 ÍBV
0-1 Delaney Baie Pridham ('18 , víti)
0-2 Viktorija Zaicikova ('75)
1-2 Alma Mathiesen ('79 )

Stjarnan og ÍBV áttust við í Garðabæ í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna nú í kvöld.

Delaney Baie Pridham skoraði fyrsta mark leiksins en það kom úr vítaspyrnu.

„MAAARK!!Clara tekur aukaspyrnuna, Antoinette með skallann og Viktorija kemur boltanum yfir línuna. 0-2!! skrifaði Alexandra Bía Sumarliðadóttir í beinni textalýsingu. Annað mark ÍBV skoraði Viktorija Zaicikova.

Alma Mathiesen náði að klóra í bakkann fyrir Stjörnuna á 79. mínútu en það var of lítið og of seint. Eyjastúlkur héldu út þrátt fyrir ágætis pressu frá Stjörnunni undir lokin.

ÍBV fer því áfram í 8-liða úrslitin en Stjarnan hefur lokið keppni í bikarnum í ár.
Athugasemdir
banner
banner