Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 31. ágúst 2021 19:32
Victor Pálsson
Lengjudeildin: Sterkur sigur ÍBV á Akureyri
Lengjudeildin
Mynd: Raggi Óla
Þór 0 - 1 ÍBV
0-1 Breki Ómarsson ('61 )

Lestu um leikinn

ÍBV vann sterkan sigur í Lengjudeild karla í kvöld er liðið mætti Þór akureyri á útivelli.

Þórsarar hafa verið í mikilli lægð undanfarið og eftir 1-0 tap í kvöld hefur liðið ekki unnið í sjö leikjum.

Þar á meðal voru sjö töp en liðið gerði jafntefli við Fjölni í síðasta leik. Síðasti sigurleikurinn kom þann 23. júlí gegn Gróttu.

ÍBV stefnir á að komast upp í Pepsi Max-deildina á ný en liðið situr í öðru sætinu með 38 stig.

Kórdrengir eru í sætinu fyrir neðan með 37 stig ef liðinu tekst að vinna Víking Ólafsvík. Staðan í þeim leik er 2-0 fyrir Kórdrengjum þegar korter er eftir.

Breki Ómarsson gerði eina mark leiksins í kvöld en hann gerði það á 61. mínútu fyrir Eyjamenn.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner