Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 31. ágúst 2022 11:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Annar leikmaður hættir að mæta til æfinga hjá Ajax
Mohammed Kudus.
Mohammed Kudus.
Mynd: EPA
Núna er annar leikmaður Ajax búinn að ákveða að fara í verkfall og neitar að mæta til æfinga.

Brasilíumaðurinn Antony vildi ekki æfa þar sem Manchester United sýndi honum áhuga. Að lokum fékk hann ósk sína uppfyllta er hann fékk félagaskipti yfir til Man Utd.

Núna hefur Ganamaðurinn Mohammed Kudus ákveðið að fara í verkfall líka.

Enska úrvalsdeildarfélagið Everton hefur áhuga á því að krækja í Kudus, sem þykir mjög efnilegur leikmaður. Hann vill fara þangað en Ajax hefur hingað til ekki viljað leyfa honum það.

Hann er ósáttur við hollenska félagið og neitar núna að mæta til æfinga.

Félagaskiptaglugginn lokar á morgun og verður áhugavert að sjá hvort hann fái að yfirgefa félagið eða ekki.
Athugasemdir
banner
banner
banner