Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 31. október 2022 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Neville ræðir ummæli Rashford: Stundum þarftu bara að einfalda líf þitt
Gary Neville
Gary Neville
Mynd: Getty Images
Marcus Rashford
Marcus Rashford
Mynd: Getty Images
Gary Neville, sparkspekingur á Sky Sports, er ánægður að sjá Marcus Rashford njóta þess að spila fótbolta á nýjan leik en hann ræddi ummæli enska sóknarmannsins eftir 1-0 sigurinn á West Ham í gær.

Rashford opnaði sig um erfiðleika á síðasta tímabili en þar ræddi hann andlegu hliðina og hvernig það var erfitt að fara inn í leiki með rétt hugarfar.

Englendingurinn átti erfitt tímabil og var veikur hlekkur í annars slöku liði en það er allt annað að sjá hann á þessu tímabili undir stjórn Erik ten Hag.

Neville ræddi ummæli Rashford og segist ánægður að sjá að hann sé búinn að finna sjálfstraustið.

„Það er eitthvað svo blákalt að heyra Rashford segja að hugarástandi hafi ekki verið í lagi fyrir leiki. Það er enginn vafi á því að það var verið að troða alltof miklu í hausinn á honum utan vallar. Það var of mikið af því og stundum þarftu bara að einfalda líf þitt."

„Hann er að gera svo góða hluti utan vallar og í raun ótrúlegt hvað hann hefur afrekað en það er þannig að fótboltinn er vinnan hans og mig grunar að fólkið sem er honum næst utan vallar voru að draga hann svolítið frá kjarnanum, sem er fótboltinn. Þar talar hann um þetta hugarfarið og það er komið aftur."

„Það var fólk sem hélt að hann þyrfti að fara frá Manchester United. Fyrir mér hefði það verið alger synd og ég vonaði að það kæmi að því að hann myndi finna sjálfstraustið á ný."

„Það komu augnablik þar sem hann hljóp af krafti, með mikinn styrk og flæði, en svo komu líka tímar á síðasta ári þar sem hann var í sömu stöðu, hikandi og sendi boltann til baka og fór auðveldu leiðina."

„Það komu líka augnablik á síðasta ári þegar Ronaldo var klár og hann kom boltanum á hann eins og hann væri undirgefinn Ronaldo. Mér sýnist hann nú vera tilbúinn að taka ábyrgðina og spilar á Rondo þegar hann þarf þess,"
sagði Neville.
Athugasemdir
banner
banner
banner