Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 31. desember 2019 14:14
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea á eftir Moussa Dembele
Moussa Dembele
Moussa Dembele
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er á eftir franska framherjanum Moussa Dembele. Sky Sports greinir frá í dag.

Dembele samdi við Lyon fyrir einu og hálfu ári síðan frá Celtic en hann hefur gert 25 mörk fyrir liðið á þeim tíma.

Michy Batshuayi og Olivier Giroud eru líklega á förum í janúar og þarf Chelsea því á framherja að halda.

Samkvæmt Sky Sports er Chelsea að skoða möguleikann á að fá Dembele en hann þekkir vel til á Englandi. Hann spilaði með Fulham frá 2013 til 2016.

Dembele er sagður með svipaðan leikstíl og Didier Drogba en sá gerði garðinn frægan hjá Chelsea. Drogba skoraði 164 mörk á tíma sínum hjá Chelsea og vann meðal annars ensku úrvalsdeildina fjórum sinnum og Meistaradeildina einu sinni.
Athugasemdir
banner
banner