Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 31. desember 2020 11:00
Aksentije Milisic
Ronaldo: Ætla spila í mörg ár í viðbót í hæsta gæðaflokki
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo er á þeim aldri þar sem margir leikmenn fara hugsa sig um hvenær skórnir fara á hilluna frægu en hann er ekki að hugsa um það, þvert á móti.

Hann segir að hann vilji spila í hæsta gæðflokki í mörg ár til viðbótar og þá stefnir hann á að taka þátt í Heimsmeistaramótinu í Qatar í lok árs 2022 með Portúgal.

„Aldurinn skiptir ekki máli. Það sem skiptir máli er hugurinn," sagði Ronaldo.

„Það skiptir ekki máli ef Cristiano Ronaldo er góður. Þú veist ekki hvað gerist á morgun, þú verður að lifa í núinu."

„Á þessari stundu er ég góður. Mér líður vel, ég er í góðu formi og á góðum stað í lífinu. Ég vonast eftir því að spila í mörg ár í viðbót, en maður veit ekki hvað gerist."

Ronaldo og félagar í Juventus eru í brasi í deildinni en þessa stundina er liðið 10 stigum á eftir AC Milan sem er á toppi deildarinnar. Juventus hefur þó spilað einum leik færra.
Athugasemdir
banner
banner
banner