Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 17. apríl 2010 16:18
Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn: ÍBV og Keflavík skildu jöfn
Eyþór Helgi Birgisson (til hægri) skoraði jöfnunarmark ÍBV.
Eyþór Helgi Birgisson (til hægri) skoraði jöfnunarmark ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 1-1 Keflavík:
0-1 Guðmundur Steinarsson
1-1 Eyþór Helgi Birgisson

Keflavík mistókst að taka toppsætið í 3. riðli Lengjubikarsins þegar þeir náðu aðeins jafntefli gegn ÍBV í Reykjaneshöllinni í dag.

Guðmundur Steinarsson hafði komið Keflavík yfir í fyrri hálfleiknum. Þá hafði verið brotið af honum innan vítateigs og dæmd vítaspyrna.

Guðmundur tók spyrnuna sjálfur en Albert Sævarsson varði frá honum. Guðmundur tók hinsvegar frákastið og skoraði.

Staðan 0-1 fyrir Keflavík í hálfleik en fyrri hálfleikinn höfðu þeir verið betra liðið á vellinum. Það breyttist þó í síðari hálfleik þar sem þeir gáfu eftir eftir smá breytingar á liðinu og Eyjamenn bættu í.

Eyþór Helgi Birgisson skoraði svo jöfnunarmarkið í leiknum með góðu skoti fyri rutan teig á nærstöng, mjög vel gert hjá Eyþóri Helga.

Heilt yfir var leikurinn þó ekki mikil skemmtun og lokatölur urðu 1-1.

Keflavík er komið með 16 stig í 2. sæti riðilsins en KR sem er í þriðja sæti með 15 stig á leik til góða. Eyjamenn eru með 11 stig í fjórða sæti.
banner
banner
banner