Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 18. febrúar 2017 22:52
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Lengjubikarinn: Þór með sigur gegn HK
Ármann Pétur skoraði sigurmark Þórsara í kvöld
Ármann Pétur skoraði sigurmark Þórsara í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Þór 2 - 1 HK
1-0 Jóhann Helgi Hannesson ('13)
1-1 Ágúst Freyr Hallsson ('47)
2-1 Ármann Pétur Ævarsson úr víti ('86)

Síðasti leikur dagsins í A-deild Lengjubikarsins var að klárast en það var viðureign Þórs og HK en leikið var í Boganum.

Liðin munu bæði leika í Inkasso-deildinni í sumar.

Norðanmenn byrjuðu betur og skoruðu á 13. mínútu en það var Jóhann Helgi Ævarsson sem skoraði mark Þórs.

Ekki voru fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik en í upphafi þess seinni jafnaði Ágúst Freyr Hallsson fyrir HK.

Sigurmarkið kom á 86. mínútu en það var Ármann Pétur Ævarsson sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu og tryggði sigur Þórs.
Athugasemdir
banner
banner