Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 29. júlí 2019 17:15
Magnús Már Einarsson
Jökull verður þriðji markvörður Reading
Jökull Andrésson.
Jökull Andrésson.
Mynd: Reading
Markvörðurinn ungi Jökull Andrésson hefur fengið úthlutað treyjunúmeri 40 hjá Reading fyrir komandi tímabil.

Jökull, sem er einungis 17 ára, fór með aðalliði Reading í æfingaferð til Spánar á dögunum þar sem hann spilaði meðal annars gegn stórliði Sevilla.

Jökull er í augnablikinu þriðji markvörður Reading á eftir Sam Walker og Joao Virgina sem er á láni frá Everton.

Emiliano Martínez varði mark Reading síðari hlutann á síðasta tímabili en hann var þá á láni frá Arsenal.

Jökull lék með yngri flokkum Aftureldingar áður en hann fór í yngri flokka Reading árið 2014 þegar bróðir hans Axel Óskar gekk til liðs við félagið.

Reading tapaði naumlega gegn Chelsea í síðasta leik undirbúningstímabilsins í gær en liðið mætir Sheffield Wednesday í fyrsta leik í Championship deildinni um næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner