Ratcliffe kaupir 27,7 prósent hlut í Man Utd (Staðfest)
Manchester United hefur sent frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að breski auðkýfingurinn Sir Jim Ratcliffe hafi gengið frá kaupum á 27,7 hlut í félaginu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25147 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Manchester United hefur sent frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að breski auðkýfingurinn Sir Jim Ratcliffe hafi gengið frá kaupum á 27,7 hlut í félaginu.
ÍA tilkynnti í kvöld komu norska varnarmannsins Erik Tobias Sandberg en hann kemur til félagsins frá Jerv í Noregi. Samningurinn gildir út 2025.
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Íslandsmeistara Vals, en hún kemur til félagsins frá Haukum.
Derby County er búið að krækja í framherjann knáa Dwight Gayle á frjálsri sölu. Félagið fær undanþágu til að semja við hann utan félagsskiptaglugga.
Tveir lykilmenn voru að skrifa undir nýja tveggja ára samninga við ÍR og munu því taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Valgeir Árni Svansson mun spila með Aftureldingu á komandi tímabili í Lengjudeildinni en hann hefur verið hjá Fylki, Leikni R. og Hönefoss í Noregi frá því að hann lék síðast með Mosfellingum.
Ítalíumeistarar Napoli hafa staðfest þriðju þjálfaraskiptin á tímabilinu. Walter Mazzarri er rekinn eftir þrjá mánuði í starfi og hefur Francesco Calzona verið ráðinn í staðinn.
Franski miðjumaðurinn Yann M'Vila er genginn til liðs við West Bromwich Albion sem leikur í Championship deildinni og er í harðri baráttu um umspilssæti um sæti í efstu deild.
Newcastle United er búið að staðfesta að Dan Ashworth hefur verið sendur í leyfi frá félaginu. Hann verður því áfram á fullum launum en mun ekki halda starfi sínu sem yfirmaður fótboltamála áfram.
Það voru stórtíðindi að berast frá herbúðum Crystal Palace þar sem félagið er búið að ráða Oliver Glasner til að taka við af Roy Hodgson.
Sunderland hefur látið stjórann Michael Beale taka pokann sinn. Þessi fyrrum stjóri Rangers var ráðinn þann 18. desember. Hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning en entist aðeins í tvo mánuði. Sunderland vann fjóra af tólf leikjum undir hans stjórn og tapaði fjórum af síðustu sjö Championship-leikjum, þar á meða gegn Birmingham og Huddersfield í síðustu tveimur leikjunum undir hans stjórn.
Bandaríska fótboltakonan Natalie Viggiano hefur skrifað undir hjá ÍBV og mun því leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Þetta kemur fram á <i>ÍBVSport</i>.
Sigurjón Rúnarsson hefur ákveðið að spila með Grindavík á komandi keppnistímabili eftir að hafa rift samningi sínum við félagið síðasta haust.
Þróttur Vogum er að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í 2. deild karla þar sem liðið stefnir upp í Lengjudeildina eftir að hafa rétt misst af öðru sætinu í fyrra.
Fótboltastjórinn þaulreyndi Neil Warnock stýrir Aberdeen í skoska boltanum og var hann að krækja í góðan kunningja sinn á skammtíma samningi.
Bandaríska knattspyrnukonan Lexie Knox hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild ÍBV og mun því koma til með að spila með liðinu í Lengjudeild kvenna í sumar.
Framkvæmdaráð fótboltasambands Suður-Kóreu fór að tilmælum ráðgjafanefndar sambandsins og er búið að reka landsliðsþjálfarann Jurgen Klinsmann. Klinsmann var í eitt ár í starfinu en hann skrifaði upphaflega undir samning út HM 2026.
<p>Marquinhos er genginn til liðs við Fluminense í Brasilíu frá Arsenal.</p>
Sjö leikmenn hafa fengið leikheimild með Kára á Akranesi en þrír þeirra fá félagaskipti úr ÍA, venslafélaginu. Það eru Björn Darri Ásmundsson, Kristian Mar Marenarson og Máni Berg Ellertsson. Allt ungir strákar sem koma til með að fá dýrmæta reynslu hjá Kára.
Miðjumaðurinn Guðfinnur Þór Leósson er kominn heim til ÍA en hann hefur skrifað undir samning á Akranesi sem gildir út leiktíðina 2025.