Romeo Beckham til Brentford (Staðfest)

Hinn tvítugi Romeo Beckham, sonur David Beckham er genginn til liðs við Brentford á láni frá varaliði Inter Miami í Bandaríkjunum en hann mun æfa og spila með varaliði enska félagsins.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25200 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Hinn tvítugi Romeo Beckham, sonur David Beckham er genginn til liðs við Brentford á láni frá varaliði Inter Miami í Bandaríkjunum en hann mun æfa og spila með varaliði enska félagsins.

Aaron Connolly framherji Brighton er genginn til liðs við Hull á láni en liðið leikur í Championship deildinni.

Botnlið ensku úrvalsdeildarinnar, Southampton, hefur nælt í sinn fyrsta leikmann í janúar glugganum. Um er að ræða króatíska miðjumanninn Mislav Orsic frá Dinamo Zagreb.

Kaupverðið er 6 milljónir punda og hann skrifar undir tveggja ára samning.

Ágúst Orri Þorsteinsson, sem Malmö FF keypti af Breiðabliki fyrir ári, er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Breiðablik eftir að félagið keypti hann til baka frá Malmö FF fyrir sömu fjárhæð og hann var seldur á. Ágúst er sautján ára sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur þegar leikið sex leiki fyrir unglingalandslið Íslands.
Manchester United hefur staðfest skipti markvarðarins Jack Butland til félagsins. Hann kemur á láni frá Crystal Palace út þetta keppnistímabil.

Daley Blind er genginn til liðs við Bayern Munchen eftir að Ajax rifti samningnum hans fyrir áramót. Hann mun spila með Bayern út þessa leiktíð.

Miðvörðurinn Benoit Badiashile er formlega orðinn leikmaður Chelsea. Félagið var að staðfesta þetta.
Berglind Rós Ágústsdóttir hefur skrifað undir samning við Sporting de Huelva í spænsku úrvalsdeildinni. Frá þessu var greint í kvöld.
Sænski varnarmaðurinn er farinn heim til Svíþjóðar eftir um fjögur ár hjá Val á Íslandi.
Brentford hefur tryggt sér framherjann Kevin Schade á sex mánaða lánssamningi frá Freiburg. Schade er 21 árs og Brentford mun kaupa hann alfarið ef gengið er að vissum ákvæðum í sakmkomulaginu.
Tottenham hefur fengið Bethany England í sínar raðir frá grönnum sínum Chelsea. England kemur á metupphæð til Tottenham, aldrei hefur verið greidd hærri upphæð fyrir leikmann sem fer á mili félaga á Bretlandi. Kaupverðið er sagt ver 250 þúsund pund sem er 50 þúsund pundum hærra en sú upphæð sem Chelsea greiddi fyrir Lauren James sumarið 2021.
HK heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deild karla en Atli Þór Jónasson er kominn til félagsins frá Hamri.
Brasilíski bakvörðurinn Fabio Da Silva er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Gremio í heimalandinu en þetta kom fram í tilkynningu í gær.
Nígeríski miðjumaðurinn Fatai Gbadamosi skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Vestra en hann kemur til félagsins frá Kórdrengjum.
Þorbergur Þór Steinarsson er genginn í raðir Stjörnunnar frá HK. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins rétt í þessu. „Stjarnan og HK hafa náð samkomulagi um félagsskipti Þorbergs sem er genginn til liðs við Stjörnuna," segir í tilkynningunni.
Albanía er búið að finna nýjan landsliðsþjálfara því fyrrum leikmaður Arsenal, Barcelona og Manchester City, Sylvinho, er tekinn við þjálfun karlalandsliðsins. Sylvinho tekur við af Edy Reja sem hafði stýrt liðinu síðan í apríl 2019.
Nottingham Forest hefur gefið það út að félagið hafi náð samkomulagi við franska félagið Rennes að lánssamningnum milli félaganna varðandi Loic Bade verði rift. Bade var lánaður til Forest síðasta sumar en hefur ekki staðið undir væntingum og er nú farinn aftur til Frakklands.
Leeds hefur gengið frá kaupum á austurríska landsliðsmanninum Maximilian Wöber. Enska félagið greiðir um ellefu milljónir punda fyrir Max sem hefur verið fyrirliði RB Salzburg í heimalandinu. Max er 24 ára gamall og spilar í miðverði en getur einnig leyst vinstri bakvarðarstöðuna. Jesse Marsch, stjóri Leeds, þekkir vel til hans þar sem hann þjálfaði Max á árunum 2019-21 þegar hann stýrði Salzburg.

Ingólfur Sigurðsson er genginn til liðs við Víði í Garði en þessi 29 ára gamli miðjumaður kemur frá KV þar sem hann lék í þrjú tímabil.

Dejan Lovren, fyrrum leikmaður Liverpool, er genginn í raðir Lyon í annað sinn á ferlinum. Króatinn lék með liðinu á árunum 2010-2013. Í kjölfarið fór hann til Southampton þar sem hann átti gott tímabil og var svo seldur til Liverpool. Hann var í sex ár í Bítlaborginni og varð meðal annars Englandsmeistari og vann Meistaradeildina með Liverpool.