Nianzou frá Bayern til Sevilla (Staðfest)

Tanguy Nianzou er genginn til liðs við Sevilla frá Bayern Munchen. Kaupverðið er talið vera 20 milljónir evra. Hann skrifar undir fimm ára samning við spænska liðið.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25208 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Tanguy Nianzou er genginn til liðs við Sevilla frá Bayern Munchen. Kaupverðið er talið vera 20 milljónir evra. Hann skrifar undir fimm ára samning við spænska liðið.

Hinn 23 ára gamli Matheus Nunes er genginn til liðs við Wolves frá Sporting Lisbon en hann gerir fimm ára samning við enska félagið.

West Ham hefur fengið þýska varnarmanninn Thilo Kehrer frá Paris St-Germain á fjögurra ára samningi. Kehrer er 25 ára og hefur spilað 128 leiki á fjórum árum með PSG síðan hann kom frá Schalke á 33 milljónir punda.
Stóra boltasækjaramálið í kringum leik Breiðabliks og Víkings hefur mikið verið til umræðu síðustu daga.

Brighton er ekki lengi að hlutunum á leikmannamarkaðinum og er búið að krækja sér í vinstri bakvörð til að fylla í skarðið sem Marc Cucurella skilur eftir sig.

Tottenham er búið að staðfesta kaupin á Destiny Udogie, 19 ára vinstri bakverði Udinese sem fer aftur til ítalska félagsins að láni út tímabilið.

Norðmaðurinn Jens Petter Hauge hefur verið lánaður frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt til Gent í Belgíu, út tímabilið.

Í fyrra gekk hann í raðir Frankfurt frá AC Milan og gerði samning til 2026.

Hauge er 22 ára sóknarmiðjumaður og vængmaður sem var hjá Bodö/Glimt og hefur leikið tíu landsleiki fyrir Noreg.

Gent er ríkjandi bikarmeistari í Belgíu og hefur hafið nýtt tímabil á tveimur sigrum og tveimur jafnteflum í fyrstu fjórum leikunum.
Fjölnir hefur samið við Magnús Hauk Harðarson um að hann taki við sem aðalþjálfari kvenna hjá Fjölni á nýju tímabili. Þeir Júlíus Ármann Júlíusson og Theódór Sveinjónsson munu klára tímabilið með liðinu en undir þeirra stjórn fór Fjölnir upp úr 2. deild yfir í Lengjudeildina.
Atli Viðar Björnsson, fyrrum sóknarmaður FH, lagði það til í Stúkunni á Stöð 2 Sport í gær að forsvarsmenn félagsins þyrftu að hringja í Pétur Viðarsson.
Manchester City hefur fest kaup á Sergio Gomez og kemur hann til félagsins frá belgíska félaginu Anderlecht. Gomez er 21 árs vinstri bakvörður sem lék 49 leiki með Anderlecht á síðasta tímabili. Hann er uppalinn hjá Barcelona en fór til Dortmund árið 2018. Hann var lánaður frá Dortmund til Huesca og hjálpaði liðinu að komast upp úr spænsku B-deildinni vorið 2020.
Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er genginn í raðir tyrkneska félagsins Alanyaspor.
Barcelona hefur tilkynnt að framherjinn Alex Collado hefur verið lánaður til Elche út tímabilið. Þessar fréttir koma ekki á óvart en Barcelona er vel mannað í fremstu stöðum og ljóst að Collado hefði fengið afar lítinn spiltíma. Collado er 23 ára og var lánaður til Granada seinni hluta síðasta tímabils.

Nottingham Forest er ekki að grínast á leikmannamarkaðinum og er búið að bæta við sig nokkrum leikmönnum yfir helgina.

Geronimo Rulli og Juan Foyth eru einu Argentínumennirnir í Villarreal en er sá þriðji búinn að bætast við: Giovani Lo Celso.

Það er nóg um að vera í herbúðum Nottingham Forest þessa stundina þar sem félagið er nýbúið að tilkynna komu hins reynda Cheikhou Kouyate á frjálsri sölu eftir fjögur ár hjá Crystal Palace.

Nottingham Forest er að stækka leikmannahópinn sinn ört á fyrstu vikum úrvalsdeildartímabilsins og var félagið að staðfesta komu Emmanuel Dennis frá Watford á fjögurra ára samningi.

Hinn bráðefnilegi Kayky er farinn út til Portúgals á lánssamningi eftir að hafa verið algjör lykilmaður með varaliði Manchester City í ensku varaliðadeildinni.

Miðjumaðurinn Nico Gonzalez er farinn út á lán til Valencia og framlengdi hann samninginn við Barcelona í leiðinni.

Alex Smithies er genginn til liðs við Leicester frá Cardiff City. Hann gerir tveggja ára samning við félagið.

Alexandra Jóhannsdóttir hefur yfirgefið þýska félagið Eintracht Frankfurt eftir eitt og hálft tímabil sem leikmaður félagsins. Þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni. Á síðunni segir að Alexandra sé að ganga í raðir félags utan Þýskalands.