Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 01. maí 2022 13:40
Ívan Guðjón Baldursson
Vöktu leikmenn Chelsea með flugeldum
Mynd: EPA

Everton er að spila gríðarlega mikilvægan leik við Chelsea þessa stundina og er staðan markalaus þegar nokkrar mínútur eru eftir af fyrri hálfleik.


Leikurinn hefur verið nokkuð tíðindalítill þar sem hvorugt liðið er að skapa sér færi en það gæti vel verið að einhverjir leikmenn Chelsea séu þreyttir eftir nóttina.

Nokkrir leikmenn vöknuðu við flugelda og læti fyrir utan hótelið sitt í Liverpool í nótt, þangað voru mættir stuðningsmenn Everton að halda vöku fyrir andstæðingum morgundagsins.

„Já það voru læti í þeim. Ég hrökk upp úr svefninum og spurði mig hvað væri í gangi en við vissum að eitthvað svona gæti gerst," sagði Jorginho fyrir upphafsflautið.

„Við bjuggumst þannig séð við þessu og það var lítið mál að fara strax aftur að sofa."

Everton gæti fallið úr efstu deild enska boltans í fyrsta sinn síðan 1951 ef liðinu tekst ekki að ná í öll stigin gegn sterkum andstæðingum.


Athugasemdir
banner
banner