Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 01. september 2022 15:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ekkert verður úr því að Dawson fari til Úlfanna
Mynd: EPA
Craig Dawson, miðvörður West Ham, hefur undanfarinn sólarhring eða svo verið sterklega orðaður við Wolves.

Þar sem Jan Bednarek, miðvörður Southampton, valdi frekar að fara til Aston Villa en West Ham þá eru mjög litlar líkur á því að West Ham hleypi Dawson í burtu. Það er Alex Crook hjá Talksport sem greinir frá.

Wolves er í miðvarðaleit eftir að félagið hleypti Willy Boly til Nottingham Forest í dag.

Dawson, sem er 32 ára, verður áfram hjá West Ham nema félagið finni annan miðvörð sem getur komið til félagsins fyrir gluggalok.
Athugasemdir
banner
banner
banner