Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 01. nóvember 2020 13:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ancelotti: Vildi hvíla Pickford
Mynd: Getty Images
Jordan Pickford er á varamannabekknum hjá Everton þegar liðið mætir Newcastle á útivelli. Leikurinn hefst klukkan 14:00. Robin Olsen er í markinu og spilar sinn fyrsta leik fyrir félagið í dag.

Carlo Ancelotti var til viðtals hjá Sky Sports fyrir leikinn í dag. Þar var hann spurður út í markvarðarstöðuna.

„Það er engin 'tæknileg' ástæða, ég vil bara hvíla hann í þessum leik. Ég vil gefa Olsen tækifæri á að fá mínútur. Jordan snýr til baka [í byrjunarliðið] á móti Manchester United," sagði Ancelotti.

Everton tapaði um síðutu helgi sínum fyrsta leik í deildinni þegar Southamtpon lagði liðið á velli á St. Mary's. Þetta er fyrsti deildarleikurinn sem Pickford spilar ekki fyrir Everton frá komu hans frá Sunderland árið 2017.
Athugasemdir
banner
banner