Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
banner
   fim 02. maí 2024 22:56
Brynjar Ingi Erluson
Tímabilið búið hjá Hernandez - Missir einnig af EM
Mynd: EPA
Tímabilið hjá franska varnarmanninum Lucas Hernandez er lokið eftir að hann reif liðband í hné í 1-0 tapi Paris Saint-Germain gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu í gær.

Hernandez meiddist undir lok fyrri hálfleiks í leiknum í gær en Lucas Beraldo kom inn í hans stað.

PSG staðfesti síðan í dag að hann hefði rifið liðband í hné og verður hann því frá næstu sex til níu mánuði.

Tímabilinu er lokið hjá Hernandez og er ljóst að hann fer ekki með Frökkum á Evrópumótið í Þýskalandi í sumar.

Hernandez, sem kom til PSG frá Bayern München á síðasta ári, hefur spilað 37 leiki fyrir Frakka.
Athugasemdir
banner
banner