Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 02. janúar 2021 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Janne Anderson: Ef Zlatan opnar dyrnar þá ræðum við málin
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic gæti snúið aftur í sænska landsliðinu á þessu ári. Samkvæmt heimildum Gazzettunnar þá er Zlatan mjög nálægt því að snúa til baka.

„Ég er búinn að hitta Zlatan og ræða við hann um framtíðina með landsliðinu. Ég er ánægður með fundinn," var haft eftir Anderson, landsliðsþjálfara Svía, á vefsíðu sænska knattspyrnusambandsins fyrir tæpum mánuði.

Nýjustu ummæli Janne um málið eru á þessa leiðina: „Ef Zlatan opnar dyrnar fyrir því að koma aftur þá munum við ræða málin."

Zlatan hefur ekki leikið með landsliðinu frá því Erik Hamren kom Svíum á EM árið 2016.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner