Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 02. maí 2021 11:21
Victor Pálsson
Mourinho ekkert að flýta sér - Rólegur í fríinu
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho segir það mögulega of snemmt fyrir hann að snúa aftur til starfa sem knattspyrnustjóri á næstu leiktíð.

Mourinho var nýlega rekinn frá Tottenham en gengi liðsins undir hans stjórn versnaði töluvert þegar leið á tímabilið.

Hann verður væntanlega orðaður við hin ýmis félög eftir að leiktíðinni lýkur en Portúgalinn er ekki að flýta sér.

Mourinho mun starfa sem sérfræðingur í sumar þegar EM fer fram. Hann hefur skrifað undir samning við bæði Sun og TalkSport.

„Ég er með engin áform. Ég mun halda áfram með lífið. Ég er ferskur, ég er rólegur og er í fríi," sagði Mourinho.

„Ég hef meiri tíma til að vinna mína heimavinnu. Ég mun bíða með að snúa aftur. Ekki bara fyrir rétta félagið heldur réttu menninguna."

„Næsta tímabil er kannski of snemma, við sjáum til."
Athugasemdir
banner
banner
banner