Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 02. maí 2022 17:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið KA og Keflavíkur: Sindri og Frans klárir í slaginn
Ein breyting hjá KA og fjórar hjá Keflavík
Sindri fékk höfuðhögg í síðasta leik og gat ekki klárað leikinn.
Sindri fékk höfuðhögg í síðasta leik og gat ekki klárað leikinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir var ekki með í síðasta leik vegna meiðsla.
Ásgeir var ekki með í síðasta leik vegna meiðsla.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
KA og Keflavík mætast í fyrsta leik dagsins í Bestu deildinni. Um er að ræða lokadag 3. umferðar í deildinni. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og fer fram á Dalvíkurvelli.

Ein breyting er á liði KA sem er með fullt hús stiga fyrir leikinn. Fyrirliðinn Ásgeir Sigurgeirsson kemur inn í liðið fyrir Bjarna Aðalsteinsson.

Þrjár breytingar eru á liði Keflavíkur sem er án stiga eftir þrjá spilaða leiki. Nacho Heras, Frans Elvarsson, Adam Ægir Pálsson og Adam Árni Róbertsson koma inn í liðið hjá Keflavík fyrir þá Edon Osmani, Erni Bjarnason, Ásgeir Pál Magnússon og Kian Williams. Kian er ekki í hópnum í dag en hinir þrír eru á bekknum.

Þá vekur athygli að Sindri Kristinn er klár í slaginn en hann fór af velli eftir stundarfjórðungsleik gegn Víkingi á fimmtudag eftir að hafa fengið höfuðhögg. Frans átti að vera í byrjunarliðinu gegn Víkingi en stífnaði upp í upphitun og spilaði því ekki í leiknum.

Lestu um leikinn: KA 3 -  2 Keflavík

Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Oleksii Bykov
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason
7. Daníel Hafsteinsson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f)
21. Nökkvi Þeyr Þórisson
26. Bryan Van Den Bogaert
27. Þorri Mar Þórisson
30. Sveinn Margeir Hauksson

Byrjunarlið Keflavíkur:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
4. Nacho Heras
5. Magnús Þór Magnússon (f)
7. Rúnar Þór Sigurgeirsson
9. Adam Árni Róbertsson
23. Joey Gibbs
24. Adam Ægir Pálsson
25. Frans Elvarsson
26. Dani Hatakka
28. Ingimundur Aron Guðnason
77. Patrik Johannesen
Athugasemdir
banner
banner