Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 02. júlí 2019 23:38
Brynjar Ingi Erluson
Rapinoe verður klár fyrir úrslitaleikinn
Megan Rapinoe
Megan Rapinoe
Mynd: Getty Images
Megan Rapinoe, fyrirliði bandaríska kvennalandsliðsins, segir að hún verði klár fyrir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í Frakklandi.

Bandaríska liðið lagði England að velli, 2-1, í undanúrslitum HM í kvöld en það vakti mikla athygli að Rapinoe var á bekknum og kom Christen Press inn í byrjunarliðið.

Rapinoe hefur farið mikinn á mótinu en hún er með fimm mörk og er næst markahæst ásamt Sam Kerr.

Hún ræddi við fjölmiðla eftir sigurinn á Englandi í kvöld en hún segist hafa verið tæp í náranum en ætti að vera klár fyrir úrslitaleikinn.

„Við tökum einn dag í einu með þessi nárameiðsli en eins og staðan er núna þá verð ég klár í úrslitaleikinn," sagði Rapinoe.

„Þegar maður er á bekknum þá verður maður að halda jákvæðri orku í hópnum, gefa góða strauma og peppa stelpurnar," sagði hún í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner