Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 02. október 2021 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
ÍBV semur við átta leikmenn
Stelpurnar átta sem sömdu við ÍBV.
Stelpurnar átta sem sömdu við ÍBV.
Mynd: ÍBV
ÍBV hefur náð samningum við átta unga og efnilega leikmenn sem bundnar eru miklar vonir við næstu árin.

Stelpurnar eru Berta Sigursteinsdóttir, Helena Jónsdóttir, Inga Dan Ingadóttir, Ragna Sara Magnúsdóttir, Selma Björt Sigursveinsdóttir, Sunna Einarsdóttir, Thelma Sól Óðinsdóttir og Þóra Björg Stefánsdóttir.

Þóra Björg skoraði sjö mörk í sumar og var valin efnilegust í meistaraflokki félagsins. Selma Björt var markahæst í 2. flokki félagsins með tíu mörk en þar var Helena valin best, Ragna efnilegust og Thelma ÍBV-ari ársins.

„Stelpurnar léku flestar mikilvæg hlutverk í meistaraflokki félagsins í ár og vonast ÍBV til þess að allar þessar stelpur muni koma til með að leika lykilhlutverk þar í framtíðinni," segir í tilkynningu frá Vestmannaeyjum.

ÍBV hefur ekki enn ráðið þjálfara fyrir kvennalið sitt, fyrir næsta ár.
Athugasemdir
banner
banner