Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 03. júlí 2021 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Immobile reyndi að blekkja dómarann - Fyndið eða pirrandi?
Mynd: EPA
Ciro Immobile reyndi að blekkja dómara leiksins í gær með því að liggja eftir eftir návígi gegn Jan Vertonghen.

Immobile vildi fá vítaspyrnu á Vertonghen og lá eftir og virtist sárkvalinn.

Leikurinn hélt áfram og Nicolo Barella skoraði skömmu seinna. Immobile stóð upp þegar hann áttaði sig á því og fagnaði með liðsfélögum sínum.

Atvikið má sjá hér að neðan. Breski fjölmiðlamaðurinn Dan Walker vekur athygli á þessari hegðun Ciro Immobile og spyr hvort þetta sé fyndið eða pirrandi.



Athugasemdir
banner
banner