Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 03. september 2021 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndir: Andri Lucas fjórði Guðjohnsen til að spila með landsliðinu
Icelandair
Andri Lucas hleypur inn á í sínum fyrsta landsleik.
Andri Lucas hleypur inn á í sínum fyrsta landsleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Lucas Guðjohnsen spilaði í gær sinn fyrsta A-landsleik þegar hann kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik gegn Rúmeníu.

Andri Lucas er fjórði Guðjohnsen til að spila með íslenska landsliðinu. Afi hans Arnór, faðir hans Eiður Smári og eldri bróðir hans Sveinn Aron höfðu áður spilað með landsliðinu.

Andri er nítján ára sóknarmaður sem er á mála hjá Real Madrid og spilar með varaliði félagsins.

Landsleikir Guðjohnsen:
Eiður Smári - 88 (26 mörk)
Arnór - 73 (14 mörk)
Sveinn Aron - 4
Andri Lucas - 1
Daníel Tristan (2006) - (2 U17 leikir)
Arnór Borg (2000) - (1 U19 leikur, 2 mörk)

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner