Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. september 2022 14:30
Aksentije Milisic
Reece James nálægt því að framlengja við Chelsea
Mynd: Getty Images

Enski landsliðsmaðurinn Reece James er nálægt því að skrifa undir langtímasamning við Chelsea en viðræður eru í gangi við þennan öfluga 22 ára gamla leikmann.


James var orðaður við Real Madrid í sumar en Carlo Ancelotti, þjálfari Real, er mikill aðdáandi James.

Ekkert meira var þó úr því og er James nú líklega að fara skrifa undir hjá Chelsea. Liðið er einnig að bjóða Mason Mount nýjan samning en hann var valinn besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð.

James og Mount eru á meðal launalægstu leikmanna liðsins en þeir eru báðir uppaldnir hjá Chelsea.

Þessa stundina er Chelsea að spila gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner