Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 03. október 2021 23:44
Brynjar Ingi Erluson
Miðvörður Mainz fljótari en Alphonso Davies
Jeremiah St. Juste
Jeremiah St. Juste
Mynd: Getty Images
Hollenski miðvörðurinn Jeremiah St. Juste bætti hraðametið í þýsku deildinni í dag er lið hans, Mainz, tapaði fyrir Union Berlin, 2-1.

St. Juste er 24 ára gamall og hefur spilað með Mainz frá 2019 er hann kom frá Feyenoord.

Hann er án efa einn fljótasti miðvörður heims um þessar mundir en hann bætti ótrúlegt hraðamet kanadíska landsliðsmannsins, Alphonso Davies, í dag.

Met Davies var 35,95 kílómetra hraði en St. Juste gerði gott betur en það í dag og mældist á 36,6 kílómetra hraða og á því metið í þýsku deildinni.
Athugasemdir
banner
banner