Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. nóvember 2020 09:10
Magnús Már Einarsson
Maupay hent út úr hóp - Lítur of stórt á sig
Mynd: Getty Images
Neal Maupay, framherji Brighton, var óvænt ekki í leikmannahópi liðsins gegn Tottenham á sunnudag.

Enskir fjölmiðlar segja að Graham Potter, stjóri Brighton, hafi áhyggjur af hugarfari Maupay og því hafi hann tekið leikmanninn út úr hóp.

Franski framherjinn er markahæstur hjá Brighton á tímabilinu með fjögur mörk.

Maupay ku hafa rifist við liðsfélaga sinn á æfingu í síðustu viku og hugarfar hans hefur ekki hrifið Potter undanfarna daga.

Potter ákvað því að skilja Maupay eftir heima í leiknum gegn Tottenham en hann gæti komið á ný inn í liðið gegn Burnley á föstudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner