Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. nóvember 2020 09:30
Magnús Már Einarsson
Tottenham sýnir Sessegnon stuðning eftir fordóma
Mynd: Getty Images
Ryan Sessegnon, leikmaður Tottenham, birti í gærkvöldi færslu á Instagram þar sem hann sýnir skilaboð sem hann fékk send.

Í skilaboðunum er einstaklingur með ljóta kynþáttafordóma í garð Sessegnon.

„Í hreinskilni ótrúlegt. Það klikkaðasta er að ég er ekki einu sinni hissa lengur. Ógeðslegt," sagði Sessegnon á Instagram.

Tottenham sendi yfirlýsingu í dag til stuðnings Sessegnon og sagði meðal annars: „Allir hjá félaginu standa með þér."

Hér að neðan má sjá færslu Sessegnon á Instagram.
Athugasemdir
banner
banner
banner