Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 04. júní 2021 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Zlatan segir Donnarumma þann besta í heimi og vill fá Giroud
Donnarumma
Donnarumma
Mynd: EPA
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan, ræddi við Gazzetta dello Sport í gær. Hann tjáði sig um Gianluigi Donnarumma sem er að yfirgefa AC Milan og Olivier Giroud sem sagður er vera á leiðinni til Milan.

„Treystið mér, hann er besti markvörður í heimi; hann hefði getað orðið nýi Paolo Maldini hjá Milan," sagði Zlatan.

„Ég væri glaður ef Olivier Giroud kæmi til Milan, við þurfum leikmenn eins og hann, hann er sigurvegari," sagði Zlatan um Giroud.

Paolo Maldini var allan sinn feril hjá Milan en Donnarumma er að verða samningslaus og hefur verið orðaður við Barcelona, Juventus og PSG að undanförnu. Giroud virðist vera á leiðinni burt frá Chelsea.


Giroud
Athugasemdir
banner
banner