Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 04. júní 2022 21:43
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona harðákveðið í að fá Salah næsta sumar
Fer Salah til Barcelona?
Fer Salah til Barcelona?
Mynd: EPA
Spænska félagið Barcelona ætlar sér að fá Mohamed Salah á frjálsri sölu frá Liverpool á næsta ári en það er Alex Richards hjá Mirror sem skrifar um þetta í kvöld.

Egypski sóknarmaðurinn hefur undanfarna mánuði verið í viðræðum við Liverpool um nýjan samning en ekki hefur náðst samkomulag enn sem komið er.

Salah, sem verður samningslaus næsta sumar, er sagður vilja framlengja samning sinn og vonast hann til að fá lausn í málið sem fyrst, en annars gæti hann yfirgefið félagið frítt.

Hann hefur verið einn og ef ekki besti leikmaður Liverpool síðustu ár en nú gæti hann verið á leið til Spánar ef marka má frétt Mirror í kvöld.

Þar kemur fram að Barcelona hafi gefið leikmanninum loforð um að fá hann næsta sumar.

Salah hefur þegar sagt að hann spili með Liverpool á næstu leiktíð en eins og staðan er núna er útlit fyrir að hann yfirgefi félagið næsta sumar. Sadio Mané mun líklega ganga til liðs við Bayern München í sumar og gæti þetta því markað nýtt upphaf í sóknarleik Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner