Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 04. júní 2022 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Englendinga: Lífleg frumraun Bowen
Jarrod Bowen spilaði sinn fyrsta A-landsleik í dag
Jarrod Bowen spilaði sinn fyrsta A-landsleik í dag
Mynd: EPA
Jarrod Bowen var besti maður enska landsliðsins sem tapaði fyrir Ungverjalandi, 1-0, í Þjóðadeildinni í Búdapest í kvöld.

Bowen átti fínt tímabil með West Ham á síðasta ári og fylgdi því svo á eftir með frábærri frammistöðu á nýafstöðnu tímabili þar sem hann gerði 12 mörk í ensku úrvalsdeildinni.

Hann var valinn í fyrsta sinn í hópinn fyrir verkefnin í júní og átti líflega byrjun. Bowen var ljósi punkturinn í frammistöðu enska liðsins í kvöld og fær hann 8 frá Telegraph.

Ansi margir leikmenn fá 5 en þar má nefna Harry Maguire, Jordan Pickford, Jude Bellingham, Harry Kane og Mason Mount.

Einkunnir Englands: Jordan Pickford (5), Kyle Walker (7), Conor Coady (6), Harry Maguire (5), Trent Alexander-Arnold (6), Jude Bellingham (5), James Justin (7), Declan Rice (6), Jarrod Bowen (8), Harry Kane (5), Mason Mount (5).
Varamenn: Bukayo Saka (6), John Stones (6), Jack Grealish (5), Reece James (5), Kalvin Phillips (5).
Athugasemdir
banner