Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 04. júlí 2021 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Shaw með fleiri stoðsendingar en Zidane
Mynd: EPA
England vann Ukraínu í 8-liða úrslitum EM í gær.

Leikurinn endaði 4-0, staðan var 1-0 í hálfleik en Luke Shaw lagði upp tvö mörk á 46. mínútu og 50. mínútu.

Shaw lagði því upp fleiri mörk á fjórum mínútum en Zinedine Zidane gerði í fjórtán leikjum á EM en honum tókst aðeins að leggja upp eitt mark.

Blaðamaður sagði Shaw þessa staðreynd og hafði hann gaman af.

„Furðuleg tölfræði. Góð, held ég. Auðvitað er Zidane einn af bestu miðjumönnum frá upphafi og ég get ekki borið mig saman við hann, eins og ég hef áður sagt um aðra leikmenn." sagði Shaw og hló.

„Þetta er skemmtileg tölfræði en aðal atriðið fyrir mér var að komast í undan úrslit, fá annan leik á Wembley fyrir framan stuðingsmennina okkar, og vonandi gera þá glaða aftur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner