Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 04. september 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Bournemouth hafnar tilboði Aston Villa í Wilson
Mynd: Getty Images
Bournemouth hefur hafnað tilboði frá Aston Villa í framherjann Callum Wilson.

Talið er að tilboðið hafi verið á bilinu 13-15 milljónir punda auk þess sem bónusgreiðslur hefðu bæst við síðar.

Félögin ætla að halda áfram viðræðum næstu dagana.

Newcastle vill líka fá Wilson og láta kantmanninn Matt Ritchie fara til Bournemouth sem hluta af kaupverðinu.

Hinn 28 ára gamli Wilson er einnig á óskalista Fulham og West Ham en hann hefur skorað 67 mörk í 180 leikjum með Bournemouth.
Athugasemdir
banner
banner
banner