Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 04. desember 2021 22:48
Brynjar Ingi Erluson
Enn eitt metið hjá Lewandowski - Nú með flest mörk á útivelli
Robert Lewandowski er markahæstur í deildinni
Robert Lewandowski er markahæstur í deildinni
Mynd: EPA
Enginn leikmaður í sögu þýsku deildarinnar hefur skorað fleiri útivallarmörk en Robert Lewandowski. Hann hirti metið í kvöld með tveimur mörkum gegn Borussia Dortmund í 3-2 sigri.

Lewandowski var með 116 mörk á útivelli fyrir leikinn í kvöld og jafnaði met Klaus Fischer á 9. mínútu.

Fischer skoraði 117 útivallarmörk á ferli sínum. Fischer lék með 1860 München, Schalke, Köln og Bochum og gerði 331 mark.

Lewandowski stal metinu af honum með sigurmarki sínu úr vítaspyrnu og hefur því enginn leikmaður skorað fleiri mörk en hann á útivelli.

Pólski framherjinn er nú með 16 mörk í deildinni á þessari leiktíð, fjórum mörkum meira en Patrik Schick, framherji Bayer Leverkusen.


Athugasemdir
banner
banner