Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 05. maí 2022 18:01
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Salernitana komið úr fallsæti
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images

Salernitana 2 - 1 Venezia
1-0 Federico Bonazzoli ('7, víti)
1-1 Thomas Henry ('58)
2-1 Simone Verdi ('67)
Rautt spjald: Ethan Ampadu, Venezia ('89)


Salernitana er að framkvæma kraftaverk í ítalska boltanum. Liðið er komið úr fallsæti eftir fjórða sigurinn í síðustu fimm leikjum.

Liðið frá suðurhluta Ítalíu fékk fallbaráttulið Venezia í heimsókn úr norðri en Arnór Sigurðsson var fjarverandi vegna meiðsla.

Alvöru fallbaráttuslagur í Salerno þar sem Federico Bonazzoli skoraði fyrsta markið strax á sjöundu mínútu.

Heimamenn voru hættulegri en gestirnir frá Feneyjum voru ekki á því að gefast upp og fengu gott færi áður en Thomas Henry jafnaði leikinn á 58. mínútu.

Heimamenn gerðu tvöfalda skiptingu í kjölfarið þar sem Simone Verdi kom inn fyrir Bonazzoli og skoraði laglegt mark fimm mínútum síðar. 

Feneyingar reyndu að sækja jöfnunarmark en það gekk ekki sérlega vel og misstu þeir Ethan Ampadu af velli með rautt spjald undir lokin.

Ampadu fékk þá tvö gul spjöld fyrir tvö heimskuleg brot með 30 sekúndna millibili.

Venezia tókst ekki að jafna og er Salernitana komið úr fallsæti í fyrsta sinn á tímabilinu.

Salernitana er einu stigi fyrir ofan fallsvæðið þegar þrjár umferðir eru eftir. Venezia vermir botnsætið og fellur með tapi í næstu umferð.


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 33 17 7 9 59 39 +20 58
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 33 4 16 13 31 50 -19 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner