Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. september 2020 16:07
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Þróttur og Njarðvík hanga í toppbaráttunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Báðum leikjum dagsins er lokið í 2. deild karla þar sem Þróttur V. og Njarðvík unnu sína leiki og hanga þannig enn í áhugaverðri toppbaráttu.

Þróttur skoraði þrjú gegn botnliði Völsungs á meðan Njarðvík vann mikilvægan slag gegn KF.

Markaskorarar úr sigri Þróttar hafa ekki enn borist en úrslit.net er með markaskorarana úr leik KF og Njarðvíkur sem var að ljúka rétt í þessu.

Njarðvík komst yfir snemma leiks á Ólafsfirði með marki frá Ivan Prskalo en Oumar Diouck jafnaði á 28. mínútu.

Bergþór Ingi Smárason og Bessi Jóhannsson bættu þó tveimur mörkum við fyrir Njarðvík fyrir leikhlé og staðan 1-3.

Sævar Gylfason minnkaði muninn fyrir KF áður en Kenneth Hogg gerði út af við leikinn á 78. mínútu.

Þróttur V. 3 - 0 Völsungur

KF 2 - 4 Njarðvík

0-1 Ivan Prskalo ('6)
1-1 Oumar Diouck ('28)
1-2 Bergþór Ingi Smárason ('34)
1-3 Bessi Jóhannsson ('39)
2-3 Sævar Gylfason ('62)
2-4 Kenneth Hogg ('78)

Það tekur tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner