Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. september 2021 14:30
Aksentije Milisic
Hammarby vann Kristianstad í Íslendingaslag - Sveindís lagði upp
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hammarby og Kristianstad áttust við í sænsku úrvalsdeildinni í dag í Íslendingaslag.

Sveindís Jane Jónsdóttir og Sif Atladóttir voru í byrjunarliði Kristianstad á meðan Berglind Björg Þorvaldsdóttir var í liðinu hjá Hammarby.

Leiknum lauk með 2-1 sigri Hammarby en Sveindís Jane lagði upp eina mark Kristianstad í leiknum.

Hammaby er í fjórða sæti með 24 stig á meðan Kristianstad er með þremur stigum færra í fimmta sætinu. Því gífurlega mikilvægur sigur hjá Berglindi og stöllum.
Athugasemdir
banner