Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 06. febrúar 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
McTominay ánægður með fyrstu kynni af Ighalo og Fernandes
Scott McTominay.
Scott McTominay.
Mynd: Getty Images
Scott McTominay, miðjumaður Manchester United, líst vel á nýja leikmenn liðsins Odion Ighalo og Bruno Fernandes.

Ighalo og Fernandes komu báðir til United áður en félagaskiptaglugginn lokaði í síðustu viku.

„Þeir eru virkilega fínir náungar," sagði McTominay í viðtali við Sky Sports.

„Fyrst og fremst eru þetta góðar manneskjur og það er það sem við þurfum hjá þessu fótboltafélagi. Við þurfum góða vini, menn sem þú getur farið út að borða með."

„Við höfum séð hvað þeir geta fært okkur á fótboltavellinum. Vonandi gefa þeir okkur mikið. Fyrstu kynni hafa verið mjög góð."

Athugasemdir
banner
banner