Mason Bennett, leikmaður Derby County í Championship-deildinni á Englandi, hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarna mánuði.
Í september á síðasta ári keyrði hann undir áhrifum áfengis eftir að leikmenn fengu að lyfta sér upp saman.
Leikmenn fóru saman út að borða og í keilu þann 24. september síðastliðinn. Derby hafði skipulagt að leikmenn ættu að halda heim á leið eftir matinn klukkan 20:00 en nokkrir leikmenn ákváðu að sitja lengur við drykkju. Bennett var einn þeirra og keyrði hann svo undir áhrifum áfengis.
Í dag komst hann aftur í fréttirnar fyrir neikvæðar sakir. Myndband af Snapchat-reikningi hans var lekið þar sem bíll sést keyra fram hjá Pride Park, heimavelli Derby. Svo er sagt: „Brenndu, fjandinn hafi það."
Þetta fór misvel í stuðningsmenn Derby, en Bennett, sem er í láni hjá Milwall, baðst afsökunar á athæfinu. „Þetta var einkabrandari. Ég verð alltaf þakklátur félaginu. Ég biðst afsökunar ef ég móðgaði einhverja."
Hér að neðan má sjá umrætt myndband.
Derby winger Mason Bennett put this on his snapchat earlier...
— Second Tier Podcast (@secondtierpod) May 6, 2020
pic.twitter.com/QIHXr33JFF
Athugasemdir