Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 06. júlí 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Svíar saka Englendinga um að sýna ekki virðingu
Mynd: Getty Images
Svíar hafa sakað Englendinga um að sýna ekki virðingu fyrir leik liðanna í 8-liða úrslitum HM á morgun.

Svíar hafa einungis fengið tvö mörk á sig á HM en þeir unnu riðilinn sinn og lögðu Sviss 1-0 í 16-liða úrslitunum.

„Ég tel að England hafi enga virðingu fyrir okkur. Ég held að fólk búist ekki við sigri okkar. Pressan er á Englandi," sagði Peter Wettergren aðstoðarþjálfari Svía.

Sebastian Larsson, miðjumaður sænska landsliðsins, tók í svipaðan streng.

„Allir í Englandi búast við að þeir fari áfram. Það yrði mikil vonbrigði fyrir þá ef þeir vinna ekki Svíþjóð," sagði Larsson.
Athugasemdir
banner
banner
banner