Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 06. september 2021 10:11
Elvar Geir Magnússon
Reguilon kallaður í spænska landsliðið
Sergio Reguilon.
Sergio Reguilon.
Mynd: Getty Images
Sergio Reguilon, varnarmaður Tottenham, hefur verið kallaður upp í spænska landsliðshópinn.

Spánn hefur spilað tvo af þremur leikjum sínum í landsleikjaglugganum en á eftir að spila gegn Kosóvó.

Spánn vann mikilvægan 4-0 sigur gegn Georgíu á sunnudag eftir að hafa tapað gegn Svíum, sem eru á toppi riðilsins, í síðustu viku.

Aymeric Laporte og Jose Luis Gaya meiddust í þeim leik. Meiðsli Laporte virðast ekki sérstaklega slæm en þau hjá Gaya eru verri og hann þurfti að draga sig úr hópnum.

Bakvörðurinn Reguilon hefur verið kallaður inn í hópinn og fer með til Kosóvó. Hann á fimm landsleiki á ferilskrá sinni.
Athugasemdir
banner