Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 06. nóvember 2020 17:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: ÍA 
Steinar framlengir við ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steinar Þorsteinsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við ÍA.

Steinar verður 23 ára í næsta mánuði og spilar iðulega á miðjunni. Hann skoraði þrjú mörk í Pepsi Max-deildinni á liðinni leiktíð í sextán leikjum.

Steinar lék á sínum tíma þrjá U-21 árs landsleiki.

Úr frétt kfia.is
Steinar hefur sannað sig sem einn af okkar lykilmönnum félagsins á undanförnum árum. Hann spilar gríðarlega stórt hlutverk fyrir okkur og okkar stefnum sem við höfum verið að vinna með.

Það er okkur sönn ánægja að Steinar muni halda áfram með okkur og hlökkum við til komandi keppnistímabils.
Áfram ÍA
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner