Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 07. júlí 2022 14:56
Elvar Geir Magnússon
Pogba á leið til Tórínó að klára málin
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba verður í Tórínó á morgun föstudag til að ganga frá endurkomu sinni til Juventus en ítalskir fjölmiðlar greina frá þessu.

Franski miðjumaðurinn fer á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið Manchester United. Það virðist aðeins tímaspursmál hvenær endurkoma hans til Juve verður staðfest.

Íþróttafréttamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að það geti gerst á morgun. Þá segir hann að Angel Di Maria gæti verið staðfestur á fimmtudaginn.

Pogba var fjögur tímabil hjá Juventus, 2012 til 2016, og vann ítalska meistaratitilinn öll tímabilin.
Athugasemdir
banner
banner
banner