Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 07. október 2020 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Lagleg afgreiðsla Giroud í 100. landsleiknum
Olivier Giroud skoraði tvö mörk og var fyrra markið sérstaklega fallegt
Olivier Giroud skoraði tvö mörk og var fyrra markið sérstaklega fallegt
Mynd: Getty Images
Frakkland valtaði yfir Úkraínu, 7-1, í vináttulandsleik í kvöld en Olivier Giroud skoraði tvö mörk og var fyrra markið afar laglegt.

Eduardo Camavinga kom Frökkum á bragðið með bakfallsspyrnu snemma leiks áður en Giroud bætti við öðru marki.

Franski framherjinn fékk boltann fyrir utan teig, lagði hann á vinstri fótinn og skaut honum í samskeytin.

Óverjandi fyrir markvörð Úkraínu en markið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Giroud
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner