Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. nóvember 2020 05:55
Victor Pálsson
Ítalía í dag - Spennandi kvöldleikur
Mynd: Getty Images
Það eru þrír leikir á dagskrá í ítölsku úrvalsdeildinni í dag en allar viðureignirnar eru á mismunandi tímum yfir daginn.

Ballið byrjar með leik Cagliari og Sampdoria en hann er sýndur beint á Stöð 2 Sport 4 klukkan 14:00.

Síðar eða klukkan 17:00 er viðureign Benevento og Spezia en Sveinn Aron Guðjohnsen er samningsbundinn því síðarnefnda.

Stærsti leikur dagsins fer svo fram klukkan 19:45 þegar Parma tekur á móti Fiorentina í hörkuleik.

Bæði lið hafa byrjað tímabilið ansi illa en Fiorentina er með sjö stig eftir sex umferðir og er Parma með fimm.

Laugardagur:
14:00 Cagliari - Sampdoria (Stöð 2 Sport 4)
17:00 Benevento - Spezia (Stöð 2 Sport 4)
19:45 Parma - Fiorentina

Athugasemdir
banner
banner
banner