Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. nóvember 2020 09:00
Victor Pálsson
Vinicius: Samband mitt og Benzema er gott
Mynd: Getty Images
Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid, segir að samband hans og framherjans Karim Benzema sé gott þrátt fyrir aðrar fréttir síðustu vikur.

Nýlega þá birtist upptaka af Benzema þar sem hann virðist segja samherja sínum Ferland Mendy að gefa ekki boltann á Brasilíumanninn unga.

Það er allt gleymt og grafið samkvæmt Vinicius sem er enn aðeins 20 ára gamall og er mikið efni.

„Ég hugsa alltaf um þá sem vilja það besta fyrir mig, fjölskyldan, fólkið hjá félaginu og samherjar eins og Marcelo og Casemiro, þeir halda mér á réttri braut," sagði Vinicius.

„Þetta snýst um það að vera hluti af besta félagi heims. Þegar við töpum þá tala þeir um okkur og þegar við vinnum þá tengist það öðru."

„Samband mitt og Benzema er gott. Líka samband mitt og Lucas Vazquez. Ég ræði mikið við þá utan vallar."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner