Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 07. nóvember 2022 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Conte vongóður um að Son fari á HM
Mynd: EPA

Heung-min Son fékk þungt höfuðhögg í leik Tottenham gegn Marseille í Meistaradeildinni í vikunni. Hann fór í aðgerð á auga sem gekk vel.


Hann var að þeim sökum ekki í leikmannahópi Tottenham í gær þegar liðið tapaði gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Antonio Conte var spurður út í Son eftir leikinn.

„Ég sendi honum skilaboð eftir aðgerðina og hann var mjög svekktur yfir þessu öllu saman en ég vona að hann nái sér mjög vel og spili á HM," sagði Conte.

„Ég var einu sinni leikmaður og veit hvað það er mikilvægt að spila á HM. Ég er bjartsýnn á að hann komi fljótt til baka og muni spila á HM með Suður Kóreu."

Suður Kórea hefur leik á HM gegn Urugvæ 24. nóvember. Næsti leikur liðsins er gegn Gana 28. nóvember og liðið líkur riðlakeppninni 2. desember þegar liðið mætir Portúgal.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner